
Klassiskt
ANOK - Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja
ANOK - Iceland Airwaves PARTNER EVENT @ Hallgrímskirkja Anok er glænýtt verk eftir Högna Egilsson samið fyrir Cantoque Ensemble, orgel, selló og slagverk. ANOK er koptíska orðið fyrir ég — sama orð og býr að baki hebreska orðinu ānōkî í „Ég er Drottinn, Guð þinn“ Verkið sækir texta sinn í fornt ljóð sem fannst við Nag Hammadi í Efra-Egyptalandi árið 1945, afritað á fjórðu öld. Þar er engin frásögn og engin ein mynd sem heldur sér. Aðeins rödd. Hún talar í andstæðum: hún er hin fyrsta og hin síðasta, hin virta og hin fyrirlitna, móðir og dóttir. Hún tekur sér hvert nafn og hafnar því um leið. Með hverri setningu verður sjálfið bæði skýrara og þokukenndara. Allt hefst á einu orði: ég en h