
Edward Gardner telst tvímælalaust til þekktustu hljómsveitarstjóra heims um þessar mundir. Hann gegnir starfi aðalstjórnanda Fílharmóníusveitar Lundúna og er tónlistarstjóri við Norsku óperuna og ballettinn auk þess sem hann er eftirsóttur gestastjórnandi hjá hljómsveitum og stærstu óperuhúsum heims. Fiðluleikarinn Alina Ibragimova hefur skipað sér á bekk með fremstu fiðluleikurum sinnar kynslóðar og kemur reglulega fram sem einleikari með hljómsveitum víða um heim en einnig sem flytjandi kammertónlistar. Hér færa þessir frábæru listamenn okkur hinn gullfallega fiðlukonsert nr. 1 eftir Sergej Prokofíev. Konsertinn ber höfundi sínum fagurt vitni með lýrískum seiðandi laglínum í bland við kraf