
Teater
Ævintýraheimur Astrid Lindgren
Sögurnar eftir Astrid Lindgren eru eitthvað sem börn á Íslandi hafa alist upp við í marga áratugi. Lína langsokkur, Emil í Kattholti, Maddit og Beta, Bræðurnir Ljónshjarta, Kalli á þakinu, Ronja ræningjadóttir, Lotta í Skarkalagötu og Börnin í Ólátagarði eru persónur sem eru okkur að góðu kunn. Fjölmargar bókanna hafa svo verið aðlagaðar fyrir leikhús eða kvikmyndaðar. Á þessum tónleikum verða flutt lög sem öll þekkja úr sýningum og myndum sem ættu að vekja góða minningar hjá börnum á öllum aldri. Við hvetjum gesti til að klæða sig upp í anda sagnanna og jafnvel sem sín eftirlætis persóna. Söngvarar eru Daníel E. Arnarson og Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm ásamt nemendum úr söngleikjadeild