
Að verða óperuhetja – í fimm einföldum skrefum | Fjölskyldudagskrá Hörpu
Fjölskyldudagskrá Hörpu:
Að verða óperuhetja – í fimm einföldum skrefum
📍 Staður: Hörpuhorn í Hörpu 📅 Dagsetning: Laugardagur 21. nóvember 🕚 Tími: Kl. 11:00 👨👩👧 Aldur: Allur aldur 🎟 Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða
Samstarfsverkefni Fjölskyldudagskrár Hörpu og Óperunnar.
Hver getur orðið óperuhetja? Þarf maður að vera prins eða prinsessa með sverð, eða getur fuglafangari í fjaðrabúningi líka orðið hetja? Óperan býður krökkum og fjölskyldum þeirra í Hörpu, þar sem fjórir óperusöngvarar og sögumaður leiða okkur í gegnum nokkrar af þekktustu óperum sögunnar, meðal annars Töfraflautuna, Carmen og Turandot. Saman komumst við að því hvernig óperuhetjur tjá tilfinningar sínar, hvernig tónskáldin hjálpa okkur að þekkja þær og hvernig við getum sjálf orðið hetjur. Eftir sýninguna má skoða búninga og leikmuni.