
Klassiskt
Að jólum
Að jólum Karlakór Reykjavíkur heldur sína árlegu Aðventutónleika í Hallgrímskirkju í Reykjavík 12.-14 desember og marka þeir lok á viðburðarríku aldarafmælisári kórsins. Efnisskrá tónleikanna verður hefðbundin blanda íslenskra og erlendra hátíðarsöngva, gamalla sem nýrra. Gestasöngvari kórsins að þessu sinni er tenórinn Sveinn Dúa Hjörleifsson, sem mun syngja einsöng með kórnum. Trompetleikarar: Eiríkur Örn Pálsson og Guðmundur Hafsteinsson. Orgelleikur: Lenka Mátéová. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson.