
KlassisktFolkRock
A Country Night In Nashville
A Country Night in Nashville snýr aftur í Hörpu í kjölfar uppseldra tónleika árið 2025 í Reykjavik, Þýskalandi og Royal Albert Hall í London, auk tónleikaferðar um Bretland sem sló öll aðsóknarmet. Ein heitasta kántrý hljómsveit heims í dag Dominic Halpin and the Hurricanes flytur mörg af frægustu lögum stærstu kántrí stjarnanna, bæði lifandi og liðinna. Dominic Halpin er einstaklega sjarmerandi söngvari og mætir í Hörpu ásamt hæfileikaríkri hljómsveit sinni sem munu endurskapa honky-tonk stemninguna í Nashville og fanga orkuna og andrúmsloftið í heimabæ kántrítónlistarinnar. Búið ykkur undir tónlistarferðalag sem spannar nokkra áratugi og hjartnæman flutning laga flytjenda eins og Johnny Ca