Hoppa till innehåll
gigradar.
Göteborg▾
1991
Rock

1991

1991 árið sem breytti tónlistarsögunni. Eftir tvenna uppselda tónleika síðasta haust endurtökum við leikinn, síðast komust færri að en vildu. Þetta verður sannkallað partý. Á aðeins 3ja mánaða tímabili árið 1991 komu út nokkrar af áhrifamestu rokkplötum sögunnar með nokkrum af áhrifamestu böndunum. Nægir þar að nefna plötur eins og Metallica (a.k.a. The Black Album) – Metallica 12. ágúst 1991 Red Hot Chili Peppers - Blood Sugar Sex Magik 24. sept 1991 Pearl Jam - Ten 27. ágúst 1991 Guns N' Roses - Use Your Illusion I 17. sept 1991 Guns N' Roses - Use Your Illusion II 17. sept 1991 Primal scream – Screamadelica 23. sept 1991 Nirvana - Nevermind 24. sept 1991 Soundgarden - BadMotorFinger 8. október 1991 Þar að auki komu út á árinu plötur eins og R.E.M. - Out of Time 12.mars 1991 Mr. Big - Lean into it 26.mars 1991 Roxette - Joyride 28.mars 1991 Lenny Kravitz - Mama Said 2.april 1991 Massive Attack - Blue Lines 8.apríl 1991 U2 - Achtung Baby 18.nóv Á þessum tónleikum verður farið aftur til ársins 1991 – ársins sem gaf okkur einhver áhrifamestu, stærstu og ógleymanlegustu rokklög sögunnar. Komdu með í geggjað partý til ársins 1991 sem breytti rokksenunni að eilífu……. Söngur: Magni Ásgeirsson Matthías Matthíasson Erna Hrönn Umsjón: Dægurflugan ehf.

Se på Háskólabíós webbplats →

Datum

Lördag 13 Feb

Tid

21:00

Pris

8.990–14.990 ISK

Dela

Lägg till i kalender

Få nästa veckas tips i Reykjavík